- Auglýsing -
Stórsöngkonan Jóhanna Guðrún Jónsdóttir og Ólafur Friðrik Ólafsson, nýji kærasti hennar, eiga samkvæmt heimildum mbl.is von á barni saman.
Nýlega var grein frá nýju ástinni í lífi söngkonunnar.
Jóhanna Guðrún skildi við eiginmann sinn Davíð Siggeirsson tónlistarmann fyrr á þessu ári.
Sé þetta rétt þá er þetta þriðja barn Jóhönnu Guðrúnar, en fyrir á hún tvö börn með Davíð, fyrrverandi eiginmanni sínum.