Bakarinn Jóhannes Felixson, eða Jói Fel eins og hann er gjarnan kallaður, er ekki viss um hvernig mun fara fyrir bakaríunum sínum. Farið hefur verið fram á gjalþrotaskipti í fyrirtækinu. Bakarinn hefur áður misst bakarí utan höfuðborgarsvæðisins í gjaldþrot.
„Ef ég á að segja þér alveg eins og er þá veit ég ekki hver staðan er. Ég bara veit það ekki,“ segir Jói Fel í samtali við Mannlíf þegar hann er spurður út í stöðuna eftir að Lífeyrissjóður verslunarmanna krafðist gjaldþrotaskipta hjá bakarískeðjunni. Ástæðan er vangoldin iðgjöld sem fyrirtækið hefur innheimt af launum starfsfólks en ekki skilað til sjóðsins og hefur fyrirtækið heldur ekki greitt mótframlag sitt til sjóðsins af launum viðkomandi starfsmanna.
Mál lífeyrissjóðsins var á dagskrá Héraðsdóm Reykjavíkur fyrr í mánuðnum en Jói segir stöðuna engu að síður frekar óljósa og getur illa gefið upp hvert framhaldið verður. „Núna er ekkert að gerast. Ég er bara að bíða. Við þurfum að ræða betur saman þegar þetta kemur meira í ljós,“ segir Jói Fel.
Ef niðurstaðan yrði gjaldþrota bakarískeðjunnar yrði það ekki í fyrsta sinn hjá Jóa. Síðla sumars í fyrra var bakarí í helmingseigu hans úrskurðað gjaldþrota. Um var að ræða bakaríið Guðni bakari á Selfossi sem Jói festi kaup á árið 2017 ásamt bakaríinu Kökuvali á Hellu. Hinu síðarnefnda hefur einnig verið lokað.
Þegar utanbæjarbakaríin lokuðu ítrekaði Jói að hann var aðeins helmingseigandi þeirra og að reksturinn hefði verið í annarra manna höndum. Reksturinn væri því ótengdur Jóa Fel bakarínum fjölmörgu í borginni sem nú virðast í vanda en óljóst hvernig fer á endanum.