Jón Ásgeir Jóhannesson, annar tveggja stofnenda Bónuss, er mættur í verslanir sínar um allt land. Að vísu er hann ekki lengur eigandi verslanakeðjunnar og heldur ekki mættur í eigin persónu í verslanirnar. Hann prýðir sem sagt forsíðu Mannlífs sem dreift er ókeypis í gegnum verslanakeðjuna. Jón Ásgeir rifjar upp tímann þegar hann og faðir hans, Jóhannes Jónsson, stofnuðu fyrsti verslanirnar og þurftu að velta fyrir sér hverri krónu til að missa ekki fótanna í rekstrinum.
Blaðið hefur beinlínis verið rifið út og er upplagið á þrotum. Enginn þarf þó að fara á mis við tímaritið því rafræna útgáfu þess er að finna hér á vefnum. Hlaðvarpsviðtalið við hann er að finna hér á VefTV Mannlífs.