- Auglýsing -
Jón Haukur Baldvinsson hefur verið ráðinn deildarstjóri eldhúss og matsala Landspítala. Jón Haukur er með BA-gráðu í markaðsfræðum og MBA frá Háskólanum í Reykjavík.
Hann hefur langa reynslu í rekstri og þjónustu í tengslum við veitingaþjónustu, meðal annars hjá Icelandair, Jamie Oliver, Coca-Cola European Partners og Icelandic Glacial. Jón Haukur tók til starfa 1. júní.