- Auglýsing -
Brúðkaupsveisla Bieber-hjónanna fór fram í gær.
Tónlistamaðurinn Justin Bieber og fyrirsætan Hailey Baldwin gengu formlega í það heilaga í gær en rúmt ár er síðan þau gengu löglega í hjónaband.
Brúðkaupsveislan margir hafa beðið eftir var haldin í gær í Suður-Karólínu í Bandaríkjunum á hótelinu Montage Palmetto Bluff.
154 gestir voru viðstaddir, þar á meðal voru Ed Sheeran, Travis Scott, Usher, Jaden Smith og systurnar Kendall og Kylie Jenner.