Samfylkingin hefur gert kröfu um að sjálfstæðismenn rými fundarherbergi sitt í Alþingishúsinu. Krafan er byggð á því að Samfylkingin er nú stærsti flokkurinn á Alþingi með 15 þingmenn en Sjálfstæðisflokkurinn er með 14 þingmenn. Samfylking á því fullan rétt á stærsta fundarherberginu í krafti stærðar sinnar. Málið er lýsandi fyrir þær sakir að Sjálfstæðisflokkurinn hefur í fyrsta sinn um langt árabil lotið í gras og er ekki lengur leiðandi í íslenskum stjórnmálum.
Hildur Sverrisdóttir, þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins, tekur kröfunni illa og segir í samtali við Morgunblaðið að engin þörf sé á því að flokkurinn rými fundarherbergið eftir að hafa verið þar undanfarin 84 ár.
Skilaboð skrifstofustjóra
„Stærsta þingflokksherbergið í Alþingishúsinu er vissulega þingflokksherbergi Sjálfstæðisflokksins, en hann hefur haft það sem þingflokksherbergi sitt í meira en áttatíu ár, frá 1941,“ segir hún við Moggann.
Ragna Árnadóttir, skrifstofustjóri Alþingis, sendi Hildi erindi Samfylkingar í byrjun janúar.
Hildur kveðst hafa svarað Rögnu og lýst því að krafa Samfylkingarinnar sé ekki í samræmi við reglur forsætisnefndar um úthlutun þingflokksherbergja. Það er því ljóst að það stefnir í kalt stríð í Alþingishúsinu þar sem niðurlæging vofir yfir Sjálfstæðisflokknum.