- Auglýsing -
Matvælastofnun (MAST) barst í morgun tilkynning um fjölda dauðra kanína í Elliðaárdal frá Heilbrigðiseftirliti Reykjavíkur í morgun. Til viðbótar hafa borist nokkrar ábendingar frá almenning um málið. Meindýraeyðir borgarinnar hirti 36 hræ í dalnum í gær og 15 til viðbótar í morgun.
Matvælastofnun sendi tíu hræ til sýnatöku og krufningar á Keldum í morgun til að rannsaka hvort smitsjúkdómur, eitrun eða annað hafi orðið dýrunum að bana. Niðurstöður rannsóknar verða birtar á vef MAST um leið og þær berast.