- Auglýsing -
Orðrómur
Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar, hefur farið á kostum undanfarið. Fyrirtæki hans hefur tekið ótal sýni úr fólki og greint það hvort fólk sé með veiruna eða ekki. Ekki bólar á neinum efasemdum fólks með rannsókn lífsýnanna. Kári hefur verið gestur víða í fjölmiðlum og glatt marga með sérstöðu sinni og húmor sem á sér vart hliðstæðu. Meðal annars var hann hjá Gísla Marteini Baldurssyni í þættinum Vikunni og yfirskyggði þar flesta aðra, meira að segja stjórnandann.