Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar, er þeirrar skoðunar að á næstunni þurfi Íslendingar að breyta nálgun sinni á sóttvarnaraðgerðum með það fyrir augum að lifa með kórónaveirunni. Í næstu viku komi einfaldlega í ljós næstu skref í baráttunni þegar fyrir liggur hversu margir bólusettir veikjast illa af veirunni.
Ef raunin verður sú að fái bólusettir verði alvarlega veikir eftir smit þurfa sóttvarnaryfirvöld að breyta nálguninni að mati Kára. Þá gangi ekki að beyta samskonar sóttvarnaraðgerðum og hingað til heldur leggja þess í stað aðaláherslu á verndun viðkvæmustu hópanna.
„Ég held að næsta vika eða svo komi til með að vera mjög þrungin af upplýsingum fyrir okkur. Vegna þess að ansi margir af þeim sem hafa smitast hafa verið bólusettir og við vitum raunverulega ekki hversu stór hundraðshluti af þeim verður raunverulega lasinn. Það er ómögulegt að segja hversu lengi við þurfum að standa í þessu og við megum ekki beita þeim aðferðum sem endanlega koma okkur öllum í gröfina. Við verðum að geta haldið áfram að lifa í þessu landi,“ segir Kári.