Arnar Þór Viðarsson, þjálfari íslenska landsliðsins í knattspyrnu tilkynnti rétt í þessu á blaðamannafundi, hópinn sem leika mun í undankeppni HM í nóvember.
Aron Einar Gunnarsson er ekki í hópnum eins og við var að búast en lögreglan rannsakar nú meinta nauðgun sem sögð er hafa átt sér stað 2010.
Þrír leikmenn gáfu ekki kost á sér og því komu þrír nýjir inn fyrir næstu leiki.
Samkvæmt Aarnar segist Jóhann Berg ekki vera 100% heill. Hann hefur verið inn og út úr liðinu hjá Burnley undanfarið. Þá er Alfreð nýbyrjaður að spila aftur og vill hann koma til baka í landsliðið þegar hann hefur náð fullum bata. Guðlaugur Victor gefur svo ekki kost á sér af persónlegum ástæðum en hann langar að eyða tíma með syni sínum sem staddur er í Evrópu. „Fyrir mér skipta börnin meira máli en tveir leikir í fótbolta,“ sagði Arnar Þór á fundinum.
Ísland mætir Rúmeníu í Búkarest 11. nóvember og Norður-Makedóníu í Skopje þremur dögum síðar. Þetta eru síðustu leikir íslenska liðsins í undankeppninni.