- Auglýsing -
Banaslys varð í Þistilfirði um hádegisbil í gær. Karlmaður á sjötugsaldri lést í slysinu. Maðurinn var við störf á fjórhjóli skammt frá sveitabæ í firðinum. Ættingjar mannsins komu að honum.
Morgunblaðið greinir frá. Endurlífgunartilraunir báru ekki árangur. Maðurinn var úrskurðaður látinn á staðnum.
Rannsóknardeild lögreglunnar á Norðurlandi eystra fer með rannsókn málsins. Ekki hefur verið greint frá nafni mannsins.