Það var annasöm nóttin hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Lögregla handtók karlmann í Hlíðahverfi í gærkvöldi en sá var í mjög annarlegu ástandi. Skömmu áður en átti að vista manninn í fangaklefa fannst rafstuðbyssa í forum hans. Verður maðurinn kærður fyrir brot á vopnalögum.
Seinna um nóttina, í Hlíðahverfi, keyrði ökumaður í veg fyrir lögreglu og inn á bílastæði. Bíllinn var án númera og bæði ökumaður, og farþegi, fóru út úr bílnum og ætluðu að forða sér. Farþeginn komst undan en lögregla handtók ökumanninn sem er grunaður um akstur undir áhrifum fíkniefna. Auk þess hefur hann ítrekað ekið án ökuréttinda, brotið lyfjalög og haft fíkniefni í forum sér.
Þá gerði lögregla húsleit í Kópavogi þar sem fundust fíkniefni og búnaður til ræktunar. Karlmaður sem er grunaður um framleiðsluna var staddur á heimilinu og var handtekinn. Í Grafarvogi hafði lögregla afskipti af manni sem svaf í bifreið en er sá grunaður um vörslu fíkniefna.