Íbúi á Seltjarnarnesi hafði samband við lögreglu í gærkvöld eftir að hann kom auga á einhverskonar hlut í sjónum. Þegar lögregla kom á vettvang kom í ljós að furðuhluturinn var aðili að leika sér á brimbretti í sjónum. Síðar um kvöldið barst lögreglu tilkynning um aðila sem var að klifra upp á svalir í íbúðarhúsnæði í hverfi 104. Þegar lögregla kom á vettvang var maðurinn kominn inn á heimili fólksins og var hann velkominn þangað að sögn íbúa. Aðilinn var búsettur í íbúðinni og hafði gleymt lyklum.
Fyrr um kvöldið var lögregla kölluð út í hverfi 101 vegna grunsamlegra mannaferða og í hverfi 108 vegna þjófnaðar úr verslun. Samkvæmt dabók lögreglu var töluvert um ölvun í miðborginni í nótt og þurfti lögregla að hafa afskipti af nokkrum í annarlegu ástandi. Þá voru nokkrir ökumenn stöðvaðir sem grunaðir eru um akstur undir áhrifum vímuefna.