Tæplega sextugur maður lést eftir útskrift af bráðamóttöku Landspítala milli jóla og nýárs, en þetta kemur fram á RÚV.
Kemur einnig fram að málið er rannsakað sem afar alvarlegt atvik; hefur verið tilkynnt til Landlæknis sem og lögreglu.
Maðurinn var hraustur, en hafði kennt sér meins; leitaði því á bráðamóttöku.
Samkvæmt heimildum fréttastofu RÚV gekkst hann undir skoðun og rannsóknir; var síðan útskrifaður af bráðadeild – sendur heim.
Maðurinn lést aðeins nokkrum klukkutímum síðar.
Landspítalinn staðfesti við fréttastofu RÚV að mál hafi komið upp á spítalanum sem sé rannsakað sem afar alvarlegt atvik sem hafi verið tilkynnt til embættis landlæknis og lögreglu; eins og verklagsreglur kveða á um.
Ekki þótti ástæða til að halda manninum á spítalanum að rannsóknum loknum, en í tilfellum sem þessum er til dæmis rannsakað hvort sú ákvörðun hafi verið rétt miðað við þær upplýsingar sem lágu fyrir varðandi sjúklinginn; hvort rannsóknir hafi verið fullnægjandi eða hvort eitthvað óeðlilegt hafi mögulega átt sér stað; hvort starfsfólki hafi mögulega yfirsést eitthvað.