Einkadóttir Titanic-stjörnunnar Kate Winslet – Mia Honey Threapleton, á í ástarsambandi við Íslendinginn Unnar Snær Þorsteinsson, sem starfar hjá Arion banka sem viðskiptastjóri.
Dóttir hinnar heimsfrægu Kate Winslet heitir Mia Honey Threapleton. Faðir Miu er kvikmyndaleikstjórinn Jim Threapleton sem til dæmis leikstýrði kvikmyndinni Extraordinary Rendition.
Mia er þegar farin að sjást á hvíta tjaldinu og virðist ætla að feta í fótspor móður sinnar.
Samband Miu og Unnars fer ekki hátt en nokkur ár eru síðan þau kynntust.
Telja má að stórleikkonan Kate Winslet sé frægasta tengdamóðir sem við hér á landi höfum átt og eigum enn. Allavega hingað til.
Fyrst var fjallað um málið á dv.is.