Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra fordæmdi árás Rússa á Twitter nú í morgun og segir árásina mikið áhyggjuefni. Færslu Katrínar má lesa í heild hér að neðan:
„Ísland fordæmir harðlega allar hernaðaraðgerðir Rússa í Úkraínu. Þessi árás er óviðunandi brot á alþjóðalögum. Líf saklausra borgara hlýtur alltaf að vera okkar helsta áhyggjuefni.“
Vladimír Pútín Rússlandsforseti ávarpaði þjóð sína í nótt eða um klukkan þrjú að íslenskum tíma. Sagði hann átök milli rússneskra og úkraínsa hersveita óhjákvæmileg en markmið þeirra væri að „að afmá nasismann“ sem hann sagði grassera í landinu.
Donald Trump fyrrverandi Bandaríkjaforseti hefur lýst yfir stuðningi við Pútín á meðan núverandi forseti Bandaríkjanna, Joe Biden reynir að stöðva stríðið. Sagði Trump í viðtali í gær að innrás Rússa væri „snilldarlega“ gerð og fjallaði CNN um málið.
Þá hefur Emmanuel Macron, forseti Frakklands sagt að Rússar ættu að stöðva hernaðaraðgerðir strax.