Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra fær sprautu í dag með bóluefni gegn kórónaveirunni. Hún fékk boð þess efnis í gær.
„Já, ég var að fá boð. Ég ætlaði nú ekki að fara með það í fjölmiðla, en þú spurðir svo ég svara,“ sagði Katrín og hló í samtali við Morgunblaðið.
Aðspurð hvort hún ætli sér að þiggja boðið hafði Katrín þetta að segja. „Já, að sjálfsögðu. Ég mæti náttúrlega þegar ég fæ boð.“
Katrín segist ekki hafa áhyggjur af því að nokkru færri sinni bólusetningarboðum nú en í upphafi.
„Við höfum almennt verið að sjá mjög góða þátttöku og oft er verið að boða með skömmum fyrirvara, svo maður hefur skilning á því. Það hefur auðvitað verið umræða um tiltekin bóluefni, en samt eru ótrúlega fá dæmi um að fólk hafi afþakkað bóluefni.“