Katrín Oddsdóttir lögfræðingur er mjög óánægð með yfirlýsingu fráfarandi formanns SÁÁ, Einars Hermannssonar þar sem hann viðurkennir að hafa keypt vændi af skjólstæðingi SÁÁ.
Krufði Katrín yfirlýsinguna á Facebook síðu sinni í gær og vakti það mikla athygli lesenda.
1. „Svaraði auglýsingu“ er orðalag sem gefur til kynna að það sé grunngjörð annarrar manneskju (fíknisjúklingins) að hafa sett auglýsinguna í loftið sem hann greyið var bara að svara.
6. Þessi „samskipti“ áttu að vera „gleymd og grafin“ að hans mati (afsakið á meðan ég æli). Hverjar eru líkurnar á að sú sem seldi honum aðgang að sér (aftur vegna neyðar sinnar sem fíkill) sé búin að „gleyma og grafa“ þessi „samskipti“?“
Bætti hún því svo við að meiru gæti hún ekki „romsað upp“ úr sér eftir minni.
„Sorrý en þetta er bara það sem ég get romsað upp úr mér eftir minni af því ég hef ekki geð í mér að lesa þetta aftur því ég verð svo ógeðslega reið við lesturinn.“
Færsla hennar hefur fengið gríðarlega athygli og hafa fjölmargir líkað við hana og margir skrifað athugasemdir við. Virðast flestir hjartanlega sammála henni.
Sjá einnig: Einar segir af sér í SÁÁ: „Svaraði auglýsingu þar sem í boði var kynlíf gegn greiðslu“
Hér má sjá viðtal Stundarinnar við fórnarlamb Einars.