Lögreglu barst í gærkvöldi tilkynning vegna innbrots og skemmdarverka en nokkrir liggja undir grun. Síðar um kvöldið var lögregla kölluð út í verslun þar sem karlmaður hafði hótað starfsfólki. Þegar lögreglu bar að garði var maðurinn á bak og burt.
Tveir menn voru handteknir í Hafnarfirði í gær fyrir brot á vopnalögum. Kemur fram í dagbók lögreglu að maður ætlaði að selja öðrum loftriffil. Kaupandinn hafi reynt að hafa riffilinn af manninum og notaði til þess rafvopn(tazer). Báðir mennirnir voru því kærðir fyrir brot á vopnalögum og fyrir að beita hvorn annan ofbeldi eða hótað ofbeldi. Vopnin voru handlögð. Þá var farþega í strætó var vísað út úr vagninum vegna þess hve illa hann lét. Einn var stöðvaður vegna gruns um akstur undir áhrifum fíkniefna og án ökuréttinda.