Talsmaður kínverskra stjórnvalda segir þau vera að ná stjórn á kóróna-faraldrinum. Til marks um það hafi nýjum tilfellum smita fækkað síðustu þrjá daga, en frá þessu eru greint á vef BBC.
Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin, WHO, er þó ekki reiðbúin til að taka undir þessa fullyrðingu kínverskra yfirvalda. Formaður hennar Tedros Adhanom Ghebreyesus segir að ógerningur sé að segja til um hvert framhaldð verði.
Í heildina hafa yfir 68 þúsund greinst með kórónaveiruna, eða COVID-19 eins og hún er kölluð. Nánast öll tilvikin hafa komið upp í Kína en utan landsins hafa 500 greinst með veiruna í tæpum 30 löndum. Fjórir hafa látist utan meginlands Kína: í Hong Kong, Japan, á Filippseyjum og í Frakklandi. Alls hafa hátt í 1.800 manns látist af völdum veirunnar. Um tíu þúsund hafa náð sér af henni.