Samkvæmt Smartlandi þá var Kristján Einar Sigurbjörnsson – betur þekktur sem Kleini – stunginn tvisvar í hópslagsmálum sem áttu sér stað í fangelsinu sem hann dvaldi í á Spáni.
Kleini losnaði úr fangelsinu nýverið; hann hafði setið inni á Spáni síðan um miðjan mars.
Kleini segir frá hópslagsmálunum á samfélagsmiðlinum Instagram; segist hafa verið inn undir hjá pólskri klíku sem hafi lánað spænsku klíkunni síma; þegar klíka Kleina fékk símann aftur til baka var raki í símanum og í kjölfarið brutust út slagsmál á milli hópanna tveggja.