Kolbeinn Þorsteinsson er kominn til starfa hjá Mannlífi. Kolbeinn hefur unnið við fjölmiðla frá árinu 2007, er hann hóf störf hjá DV. Sólartún, útgáfa Mannlífs, hefur undanfarið verið að færa ut kvíarnar Auk þess að halda úti mannlif.is kemur tímaritið Mannlíf út hálfsmánaðarlega. Þá hóf Vín og Matur göngu sína fyrir tveimur vikum. Blaðið kemur út mánaðarlega. Á næstunni koma síðan út fleiri titlar sem kynntir verða. Kolbeinn mun gegna stöðu gæðastjóra.
Hann hefur starfað við ýmislegt um ævina, meðal annars sjómennsku og húsasmíði, en hefur undanfarin ár unnið við prófarkalestur og þýðingar af ýmsu tagi.
„Mér líst vel á þessa nýjustu vendingu mína. Mannlíf er í ágætis blóma og nýir kollegar mínir hér eru samhent lið með skýr markmið. Ég hlakka til að leggja mín lóð á vogarskálarnar á nýjum vinnustað á ört stækkandi fjölmiðli,“ segir Kolbeinn.