Lögreglan í Kópavogi komst í feitt þegar hún stöðvaði ökumann í akstri. Margvísleg brot komu á daginn. Hann er grunaður um akstur undir áhrifum fíkniefna, bifreiðin á röngum skráningarnúmerum og ætlað þýfi með í för. Ökumaður og farþegi voru handteknir og vistaðir í fangageymslu. Þeir munu vakna í fangaklefa á fallegum sumardegi og þurfa að svara til saka.
Í Kópavogi var einnig tilkynnt þjófnað úr verslun. Skýrsla var tekin af búðarþjófinum og honum síðan sleppt. Annar búðarþjófur var á ferð í austurborginni. Sá var staðinn að verki og lögregla kölluð til. Málið hans var afgreitt á vettvangi
Tilkynnt var um þjófnað úr heimahúsi í Breiðholti. Gerandi ókunnur og innbrotsþjófurinn gengur laus. Á sömu slóðum var líkamsáras tilkynnt til lögreglu. Meiðsli reyndust vera minniháttar.
Maður var handtekinn í miðborg Reykjavíkur vegna hótana. Hann tók engum sönsum og var vistaður í fangageymslu sökum ástands. Á sömu slóðum var framið innbrot og unnið skemmdarverk auk þjófnaðar. Skemmdarvargurinn gengur laus.
Ökumaður stöðvaður í almennu eftirliti í austurborginni. Við skoðun kom í ljós að ökumaðurinn hafði ekki ökuréttindi. Mál hans var afgreitt á vettvangi.
Umferðaslys varð í Garðabæ. Minniháttar meiðsli urðu. Ökutækið var stórskemmt og fjarlægt af vettvangi kranabíl.
Hann var seinheppinn ökumaðurinn sem lögreglan stöðvaði. Í ljós kom að tryggingar höfðu ekki verið greiddar. Númerin voru klippt af bifreiðinni.