- Auglýsing -
Talsverð spenna og eftirvænting ríkir í Frakklandi, enda kosningar í gangi.
Nú er búið að opna kjörstaði í Frakklandi; nú kjósa Frakkar nýtt þjóðþing.
Emmanuel Macron, forseti Frakklands, tók mikla áhættu er hann boðaði afar óvænt til þingkosninga, eftir slæmt gengi flokks hans í Evrópuþingkosningum fyrr í mánuðinum.
Almennt séð er ekki búist við því að þetta útspil Macrons dugi; flestar spár benda til stórsigurs hjá þjóðernisflokki Marine Le Pen.
- Auglýsing -