Gefnar hafa verið út leiðbeiningar fyrir dvöl í farsóttarhúsinu í Fosshóteli Lind við Rauðarárstíg. Um úrræði er að ræða fyrir fólk sem þarf að vera í sóttkví eða einangrun vegna COVID-19 en getur ekki verið heima hjá sér.
En það er ekkert sældarlíf að dvelja á hótelinu.
Í nýjum leiðbeiningum frá landlækni og almannavarnardeild ríkislögreglustjóra kemur fram að þeir sem dvelji í húsinu þurfi að geta fylgt fyrirmælum.
Í leiðbeiningum segir meðal annars: „Gestir sem dvelja í farsóttarhúsi þurfa að vera sjálfbjarga með marga hluti sem dæmi sjá þeir sjálfir um þrif á sínum herbergjum, skipta um rúmfatnað, ganga frá rusli og koma því fram á gang.“
Eins er tekið fram að gestir þurfi að fylgja reglum og fyrirmælum og að ekki sé leyfilegt að ganga um húsnæðið og engar heimsóknir eru leyfðar.
Í leiðbeiningunum kemur fram að það sé krefjandi að vera í farsóttarhúsi og að ef fólk fylgi ekki reglum hússins eða skapi hættu á smiti til starfsfólks og sjálfboðaliða verður því gert að yfirgefa húsið.
„Það er krefjandi að vera í farsóttarhúsi þar sem um eitt herbergi er að ræða þó
aðgangur sé að góðu neti og sjónvarpi og þurfa einstaklingar sem hyggja á dvöl þar að
gera sér grein fyrir því og samþykkja.“
Í leiðbeiningunum er vakin athygli á að reykingarfólk sem dvelur í farsóttarhúsinu þurfi að draga úr reykingum. „Tveir aðilar, klæddir fullum hlífðarbúnaði þurfa að fylgja viðkomandi út og inn og þrífa á eftir, það er ekki gerlegt hvenær sem er.“