Kristín nokkur, íbúi í Mosfellsbæ, kallar eftir vitnum eftir að dóttir hennar var áreitt af tveimur strákum á vespum við Tunguveg. Hún fullyrðir að drengirnir hafi ógnað með barefli og sýnt ungu stúlkunni afar ógnandi hegðun.
Atburðarrásinni lýsir Kristín í íbúahópi Mosfellinga á Facebook. Hún lýsir upplifuninni með eftirfarandi hætti og óskar eftir vísbendingum frá íbúum.
„Dóttir mín var að koma heim eftir Tunguveginum í kvöld, ca. kl. 23. Það voru tveir strákar á vespu að ógna henni og áreit. Hún var á leiðinni niður í átt að Leirvogstungu og þeir upp, þangað til þeir snéru við til atlögu við hana. Vespan var grá, mögulega teip á henni. Ökumaðurinn hjálmlaus og farþeginn líka. Þeir öskruðu á hana, keyrðu fram og til baka og annar þeirra var með eitthvað barefli sem hann sló í áttina að henni margoft,“ fullyrðir Kristín. Og heldur svo áfram:
„Ég er öskuill og langar mest út að finna þessa fanta. Allar vísbendingar vel þegnar og foreldrar stráka á vespum og foreldrar stráka sem eiga vini á vespum, ef þið kannist við lýsinguna á strákunum og vespunni viljið þið þá veraí sambandi við mig. Þetta er háalvarlegt mál! Við munum leita að að þessum dólgum!“
Fjölmörgum íbúum Mosfellsbæjar er brugðið við færslu Kristínar og margir þeirra kalla eftir því að lögreglu sé blandað í málið. Katrínu líst ansi illa á. „Úff, þetta er svakaleg lýsing“, segir Katrín. Þorsteinn er einn þeirra sem bruðið er. „Þeir finnast þessir óþverrar. Hvet alla til að hjálpast að með vísbendingar, þannig að svona lagað endurteki sig og verði daglegt brauð, það er hættan,“ segir Þorsteinn.
Halla á varla til orð. „Hræðileg upplifun fyrir hana! Vonandi finnast fantarnir!,“ segir Halla. Guðrúnu er líka mjög brugðið. „Ég get ímyndað mér að hún hafi verið mjög skelkuð, þetta er alvarlegt og að mínu mati þurfa að vera afleiðingar fyrir þessa drengi,“ segir Guðrún. Dóttir Sigurveigar hefur líka lend í vespustrákum Mosfellsbæjar. „Dóttir mín og vinkona hennar lentu í svipuðu. Nema ekki barefli heldur hjóluðu ítrekað ógnandi að þeim,“ segir Sigurveig.
Sonja virðist kannast við drengina. „Þekki þessa lýsingu. Þeir hanga oft uppí sjoppu og hegða sér eins og þeir eigi heiminn. Þeir gera engan greinamun á ungum né fullorðnum, rífa kjaft og eru með ógnandi hegðun,“ fullyrðir Sonja.
Og það virðist önnur Halla, sem einnig býr í Mosfellsbæ, líka gera. „Eru ekki að minnsta kosti alltaf 2 hliðar á öllum málum? Skiljanlega hlustum við á börnin okkar og stöndum með þeim alveg sama hvað og það er það sem ég er að gera núna. Ég þekki einmitt til þessara drengja, „fanta“ eða „dólga eins og þú orðar svo pent. Þessi drengir eru ekki með þessa hegðun í hjarta sínu. Þeir fullyrða sjálfir að þeir héldur ekki á neinu, ógnuðu engu eða engum með barefli,“ segir Halla og kallar eftir stillingu meðal bæjarbúa:
„Munið það kæru Mosfellingar að við erum að ræða um börn sem hafa tilfinningar og get ég fullyrt að þeir eru ekki hoppandi glaðir með prakkarasvip framan í sér, þvert á móti.“