Kristján Þór Guðmundsson læknir er látinn 53 ára að aldri. Kristján fæddist í Reykjavík 15. júlí 1968. Hann lést á heimili sínu þann 24. júní í Malmö, Svíþjóð. Foreldrar Kristjáns voru þau Hanna Sigurðardóttir, lögfræðingur og Guðmundur Helgi J. Elíasson. Kristján var elstur fjögurra systkina, Sigurðar Freys, Bjarndísar Hrannar og Tanyu Kristrúnar, sammæðra. Þá lætur Kristján eftir sig samfeðra systur í Kanada, Michelle Arnarson.
Kristján fluttist ungur með móður sinni til Kanada og bjó þar fyrstu þrjú ár ævi sinnar. Eftir að heim til Íslands var komið stundaði hann nám í Reykjavík. Hann útskrifaðist sem stúdent frá Fjölbrautaskólanum í Breiðholti 1988. Þá lagði hann stund á nám í læknadeild Háskóla Íslands Kristján og útskrifaðist þaðan 1997. Síðustu árin starfaði hann röntgensérfræðingur á sjúkrahúsi í Kongsvinger í Noregi.
„Það lék allt í höndum þér og það sem þú snertir varð að gulli, ég öfundaði oft hæfileika þína og gáfur. Þú varst góður í öllu, hvort sem það var karate, söngur, spila á hljóðfæri, taka myndir, vinna þær og vera sjálfur módelið. Sagðir oft við mig að það væri ekki þín sök að myndirnar af mér væru ekki góðar heldur væri það hæfileiki minn að sitja fyrir sem skemmdi myndirnar. Þú komst skoðunum þínum alltaf skemmtilega á framfæri án þess að meiða einhvern. Minning þín mun aldrei deyja. Ég elska þig að eilífu og mun alltaf sakna þín. Set hér smá texta úr lagi sem við hlustuðum oft á“.
Þín systir
Bjarndís Hrönn Hönnudóttir.
„Elsku Kristján minn ég vona af öllu hjarta að þú sért sáttur þar sem þú ert í dag og að þú haldir utan um alla þá sem þér þykir vænt um í sumarlandinu, og ég efast ekki um að það sé alltaf skandinavískt veður þar. Ég ætla að enda þetta á nokkrum orðum úr lagi sem minnir mig alltaf á þig, og við tókum svo fallega úti í garði í sólinni og þú glamrandi á gítar, elsku brói og yndislega sál.
Hey litli hermaður
Viltu leika við mig?
Meðan kúlur fljúga um loftin blá
við gætum leikið frið.
Ég skal vera kærleikurinn
þú getur verið skynsemin.
Gleymum föllnum félögum
byrjum upp á nýtt.
(Bubbi Morthens)
Ég elska þig alltaf,“
þín systir Tanya.
Mannlíf vottar aðstandendum innilega samúð. Blessuð sé minning Kristjáns Þórs.