Krónan hóf að senda vörur úr snjallverslun í sveitarfélagið Voga 4.maí. Ekki eru allir á eitt sáttir með þessa þjónustu hjá Krónunni. „Á nú að drepa niður búðina loksins þegar hún er komin?“ spyr einn íbúi inn á íbúðasíðu sveitarfélagsins Voga.
Eins og Mannlíf greindi frá þá var opnuð verslunin Vogus í Vogum í byrjun mars eftir að bæjarfélagið hafði verið án verslunar í tæp tvö ár. Þá var þar engin verslun fyrir og stóru keðjurnar litu ekki við staðnum. Nú hefur Krónan brugðist við og efnir til heimsendingarþjónustu.
„Verslum í búðinni okkar sem er á staðnum. Krónan vildi ekki senda til okkar þegar við þurftum á því að halda.“ segir Sigurbjörg
„Ekki vildu þeir koma og opna búð þegar við þurftum á því að halda. Stöndum vörð um búðina okkar hér.“ segir Gestný.
Aðrir fagna því að Krónan ætli að bæta þjónustu við íbúa í Vogum og telja að þessi viðbót muni alls ekki drepa niður verslunina á staðnum.