Laugardagur 21. desember, 2024
-2.2 C
Reykjavik

Krúttleg í Costco

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Arnar Grant og Vitalía Lazereva eru án efa frægasta par Íslands í dag; í stuttu máli sagt þá hefur sambandi þeirra verið lýst sem dýrasta ástarsambandi Íslandssögunnar.

Þau hafa sést saman undanfarið; versluðu saman í Krónunni í Hafnarfirði nýverið.

Arnar og Vítalía kíktu við í Costco um daginn – eins og sést á myndinni með þessari frétt.

Þau vekja afar mikla athygli hvar sem þau koma saman.

Til upprifjunar þá var það í lok júní sem fregnir bárust af því að Arnar og Vítalía höfðu verið kærð til héraðssaksóknara fyrir tilraun til fjárkúgunar, hótanir og brot gegn friðhelgi einkalífs.

- Auglýsing -

Voru kærendur þeir Ari Edwald, Hregg­viður Jóns­son og Þórður Már Jóhannes­son.

Upphaf málsins var í byrjun þessa árs, þegar Vítalía greindi frá því í hlaðvarpsþættinum Eigin konur, að hún ætlaði sér að leita réttar síns; eftir að hafa orðið fyrir meintu kynferðisofbeldi af hálfu þremenningana.

Í þessum sama þætti greindi hún einnig frá ástarsambandi sínu við kvæntan mann – Arnar Grant – sem bauð henni í sumarbústað; þar sagði hún að sagði meint brot hefðu átt sér stað í heitum potti við sumarbústað Þórðar Más, þar sem fjórmenningarnir voru naktir ásamt henni.

- Auglýsing -

Þá lýsti Vítalía því einnig í viðtalinu við Eddu Falak hvernig Arnar hefði veitt fjölmiðlamanninum Loga Bergmann kynferðislegan aðgang að henni í golfferð haustið 2021.

Mikið uppnám var vegna uppljóstrananna; Logi missti vinnuna eins og Ari Edwald. Þórður Már sagði af sér sem stjórnarformaður Festis, sem rekur Krónuna. Arnar skildi við konu sína.

Þá var það rakið til málsins að Eggert Þór Kristófersson, forstjóri Festis, var rekinn úr starfi.

Eggert hafði sýnt málstað Vítalíu skilning; átti viðræður við hana. Sex mánuðum eftir uppljóstrunina, í byrjun júlí, steig Arnar Grant loks fram og sagði Vítalíu ekki hafa farið rétt með frásögn af Loga.

Spurður hvers vegna hann hafi þagað yfir þessu í hálft ár, svaraði Arnar:

„Hvar átti ég að byrja til að vinda ofan af þessu? Skaðinn var skeður og ég vildi bara hlífa fjölskyldunni og öðrum. Ég var hræddur við enn meira skítkast, ásakanirnar voru svo þungar að ég átti ekki von á að mér yrði trúað. Andrúmsloftið í samfélaginu var ekki vinveitt og ég vildi bara ekki fara í einhvern leðjuslag.“

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -