Lögreglan hafði afskipti af manni í Hafnarfirði í nótt sem var að brenna rusli á lóð sinni. Maðurinn var ósamvinnuþýður og vildi ekki hleypa slökkviliði og lögreglu inn á lóðina. Þetta kemur fram í dagbók lögreglu.
Lóðin er lokuð með hárri girðingu og vildi maðurinn ekki hleypa slökkviliði og lögreglu að eldinum og var ósáttur við afskiptin. Slökkvilið náði að sprauta vatni á eldinn og maðurinn slökkti í glæðunum.
Þrír ökumenn voru grunaðir um akstur bifreiðar undir áhrifum fíkniefna í gærkvöldi. Tveir þeirra voru sviptir ökuréttindum. Þá voru afskipti höfð af ungum manni í Breiðholti vegna vörslu fíkniefna. Laust fyrir átta í gærkvöldi stöðvaði lögreglan ólöglega bifreið við Hringbraut. Bifreiðin var pallbifreið með kerru í eftirdragi. Hún var með röng skráningarnúmer og ótryggð. Skráningarnúmerin voru fjarlægð og send Samgöngustofu.
Tilkynning um vinnuslys í Grafarvogi barst lögreglunni í gærkvöldi. Ungur maður var að keyra sópara þegar þungir kassar féllu úr hillurekka á manninn. Maðurinn var fluttur með sjúkrabifreið á Slysadeild. Maðurinn er talinn óbrotinn en verkjaður víða.