- Auglýsing -
Fjölmennt lið Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins var kallað út Slippinn í Reykjavíkurhöfn eftir að eldur kom upp í togaranum Þinganesi SF 25. Engin slys urðu á fólki vegna eldvoðans og greiðlega gekk að slökkva eldinn.
Eyþór Leifsson, varðstjóri hjá slökkviliðinu, segir að slökkvistarf á vettvangi hafi gengið vel. „Við fórum í útkall inni í Slipp. Það er búið að slökkva eldinn og allt saman gekk bara frekar vel. Engin slys á fólki. Það fóru þrjár stöðvar af stað en þetta var fljótafgreitt,“ segir Eyþór í samtali við Mannlíf.
Slökkvilið sendi frá sér tilkynningu rétt í þessu vegna málsins. „Nú er slökkvilið að störfum við slippinn þar kom upp eldur í togara sem er í slipp. það er það að frétta að eldurinn er að öllum líkindum slökktur en verið er að senda reykkafara inní skipið til að athuga aðstæður. ekki hafa verið nein slys á fólki, þeir sem voru að vinna í skipinu komust út að sjálfstæðu,“ segir í tilkynningunni.