Tómas Guðbjartsson, hjartalæknir og náttúruverndarsinni er afmælisbarn dagsins en hann er fæddur á þessum degi á því herrans ári 1965.
Mannlíf sló á þráðinn hjá lækninum og spurði hann hvort hann vildi tjá sig eitthvað á afmælisdeginum.
„Ég er bara bjartsýnn fyrir komandi ári og ætla að vera duglegur að ferðast um íslenska náttúru og halda áfram að kynna fegurðina fyrir landsmönnum. Svo þeir sjái verðmæti í henni. Síðan vona ég að við komumst út úr þessum núverandi kúf í Covid svo það verði meira andrými í vinnunni.“
En hvernig heldur Tómas upp á daginn?
„Ég var á vakt í nótt en er ekki á vakt í dag þannig að ég er að hugsa um að skella mér í sund. Þegar ég á afmæli fer ég oftast og syndi í Kópavogslaug sem er besta sundlaug landsins, fyrir utan sundlaugina á Tálknafirði. Ég syndi alltaf tvo kílómetra.“