„Ég spurði lækninn hvort við systkinin ættum að láta athuga hvort við værum útsett fyrir heilabilun en læknirinn ráðlagði okkur frá því. Það myndi búa til óþarfa áhyggjur. Við ættum að einbeita okkur að lífinu“ segur Ragna Þóra Ragnarsdóttir aðspurð um hvort hún muni láta kanna möguleikann á heilabilun.
Heilabilun hefur lagst þungt á fjölskyldu Þóru og féllu báðar ömmur hennar í valinn af völdum sjúkdómsins. Ragna Þóra er í einlægu Helgarviðtali Mannlífs.
Því næst var komið að móður hennar, Dagný Gísladóttir og sama á og hún lést byrjaði sjúkdómurinn að herja á mann Rögnu, Guðlaug Níelsson, aðeins sextugan að aldrei. „Hann er ennþá alltaf í rosa góðu skapi. En hrörnunin er hröð. Hann ruglast stundum á eldhúsinu og baðherberginu. Það er heilmikill ruglingur í gangi. Það er komið hæfnis- og færnimat og hafa læknar ráðlagt okkur að sækja um fyrir hann á hjúkrunarheimili fyrr en seinna.“