Takist ekki að finna samningsflöt milli Icelandair og Flugfreyjufélags Íslands á samningafundi í dag er tilgangslaust að halda viðræðunum áfram. Þá verða aðrar leiðir farnar. Þetta er mat Boga Nils Bogasonar, forstjóra Icelandair, sem segist ekki ætla að að láta neitt koma í veg fyrir björgun félagsins.
Icelandair stefnir á að hafa náð samkomulagi við alla hagsmunaaðila fyrir 29. júní næstakomandi því í framhaldinu er stefnt á hlutafjárútboð til björgunar félaginu. Að ná samningum við flugfreyjur er þar stór liður.
Í dag fer fram mögulega síðasta tilraun samninganefnda félaganna til að ná saman þegar þær hittast hjá Ríkissáttasemjara. Bogi forstjóri staðfestir það og segir því miður ansi langt vera á milli samningsaðila. „Ef við finnum ekki flötinn núna er tilgangslaust að halda áfram,“ segir Bogi.
Lestu meira um málið í Mannlíf.