Landlæknisembættið hefur boðað útfararstjóra landsins til fundar í byrjun vikunnar. Á fundinum verður farið yfir verkferla um hvernig á að meðhöndla lík þeirra sem látast vegna kórónaveirunnar COVID-19-sjúkdómnum.
Fréttablaðið greinir frá þessu. Þar kemur fram útfararstjórum landsins hafi verið farið að lengja eftir þessum upplýsingum frá heilbrigðisyfirvöldum þar sem talið sé að væg sýkingarhætta stafi af líkum þeirra sem látast af völdum COVID-19.
Í svari Landlæknisembættisins við fyrirspurn Fréttablaðsins kemur í ljós að þessar upplýsingar séu tilbúnar en ekki hefur þótt tilefni til að birta þær.