„Við höfum alveg séð það meira á þessu ári,“ sagði Davíð Már Bjarnason, upplýsingafulltrúi hjá Slysvarnafélagnu Landsbjörgu í samtali við Mannlíf í dag.
Þrátt fyrir óveðrið sagði hann að björgunaraðgerðir hafi gengið nokkuð vel í dag en útköllin byrjuðu snemma í morgunsárið. „Þetta byrjaði snemma í morgun en þá þurfti að aðstoða sjúkrabíl sem var á leiðinni til Reykjavíkur út af föstum bílum“.
Sjúkrabíllinn sem þurfti aðstoð var staddur á Hellisheiði en hafði flutningabíll runnið þvert yfir veginn og sátu bílar fastir þar í kring. Í þrengslunum fór rúta út af veginum en færðin var afar slæm að sögn Davíðs. „Rétt fyrir hádegi náðu þeir að koma rútunni upp á veg og fylgdu bílstjóranum, þetta gekk allt saman þokkalega“.
Eftir hádegi tókst svo ýmislegt á loft. „Það var trampólín að fjúka, ótrúlegt en satt, þakplötur, gámar og skjólveggir á suðurnesjum. Það er ótrúlega merkilegt að það séu ennþá að fjúka trampólín,“ sagði Davíð og bætti við að nú færi að styttast í vorið.