- Auglýsing -
Landspítalinn var að senda frá sér yfirlýsingu vegna stöðunnar sem komin er upp í tengslum við Covid 19 hér á landi; faraldurinn er á hraðri uppleið og greinilegt að nú á að bregðast við hratt, enda full ástæða til.
Yfirlýsinguna frá spítalanum má lesa í heild sinni hér að neðan:
LANDSPÍTALI FÆRÐUR Á HÆTTUSTIG
Landspítali var færður á hættustig í dag föstudaginn 5. nóvember 2021, kl. 16:00. Þá kom viðbragðsstjórn saman til fundar ásamt farsóttanefnd og tók ákvarðanir sem varða breytta starfsemi.
Samkvæmt skilgreiningu er hættustig þegar orðinn atburður kallar á að starfað sé eftir viðbragðsáætlun. Aukið og breytt álag er á fjölmargar starfseiningar. Þetta getur falið í sér bæði breytta starfsemi og tilflutning á verkefnum og starfsfólki.
Nú eru 1.082 einstaklingar í eftirliti COVID göngudeildar. Þrír sjúklingar liggja á gjörgæsludeild, allir í öndunarvél og einn í hjarta- og lungnavél. Á smitsjúkdómadeild eru nú 13 sjúklingar og nálgast deildin hratt þolmörk. Byrjað er að huga að flutningi sjúklinga frá lungnadeild til að skapa rými þar fyrir COVID sjúklinga en búast má við a.m.k. þremur innlögnum á dag að jafnaði næstu daga.
Mikill og vaxandi fjölda smita undanfarið mun skila talsverðum fjölda innlagna á næstu vikum. Legutími óbólusettra sjúklinga og þeirra sem þurfa á gjörgæslumeðferð að halda er nokkuð lengri en þeirra sem eru fullbólusettir og því er erfitt að spá um hvernig flæði sjúklinga verður en gott flæði er lykillinn að því að hafa vís legurými á hverjum degi.
Þegar spítalinn er færður á hættustig er dregið úr valkvæðri starfsemi (aðgerðum, inngripum, göngudeildarþjónustu). Með því móti losnar um eitthvað af starfsfólki sem getur þá komið til liðs við COVID deildirnar. Einnig skapast svigrúm á legudeildum.
1. Vegna fjölda smita sem hafa borist inn á spítalann með gestum á undanförnum dögum og vikum telur farsóttanefnd einboðið að setja á heimsóknarbann frá og með miðnætti. Eins og áður veita forsvarsmenn deilda nauðsynlegar undanþágur.
2. Leyfi sjúklinga eru aðeins heimil ef þau eru nauðsynlegur undirbúningur útskriftar og/eða hluti endurhæfingar. Leyfi er þá bundið við einn stað og að viðkomandi hitti fáa.
3. Fundir hvers konar skulu haldnir sem fjarfundir.
4. Aldrei verður hægt að leggja of mikla áherslu á mikilvægi persónubundinna sóttvarna, réttrar grímunotkunar og að fara strax í sýnatöku ef einkenna verður vart. Þetta eru þau verkfæri sem við eigum, þekkjum og eru auðveld í notkun. Áfram er grímuskylda og eins metra regla. Þegar gríma er tekin niður til að matast gildir tveggja metra regla.
5. Þá er starfsfólk eindregið hvatt til að fara í örvunarbólusetningu. Gögn sýna að örvun bætir mótefnasvarið verulega og það hjálpar við að takast á við delta afbrigði veirunnar.
Viðbragðsstjórn og farsóttanefnd munu funda daglega næstu daga og gefa út tilkynningar að fundi loknum.