Mannlíf tók saman matarkörfu í Krónunni, Bónus, Nettó og Krambúðinni. Dýrust var karfan í Krambúðinni eða 6449 krónur en ódýrust í Bónus 4712 krónur. Munurinn er 37 prósent þar sem Krambúðin er dýrari.
Mestur var munurinn á Grískri jógúrt frá MS 350 gr en þar var Krambúðin 64 prósent dýrari en Bónus. Töluverður munur var einnig á Colombia kaffi frá Te&Kaffi en þar kaffið 45 prósent dýrara í Krambúðinni en í Bónus. Alls voru bornar saman 11 vörutegundir.
Mannlíf hefur áður fjallað um krónusamráð milli Bónuss og Krónunnar. Nú kemur á daginn að Nettó blandar sér í slaginn og heldur verði sínu, friðsamlega, einni krónu fyrir ofan Krónuna. Þetta er þó ekki algilt í veðlagningu en þó mjög áberandi. Til dæmis kostar Floridana Heilsusafi 249 krónur í Bónus, 250 krónur í Krónunni og 251 krónur í Nettó. Eins kostar Kornax hveiti 2kg 397 krónur í Bónus, 398 krónur í Krónunni og 399 krónur í Nettó. Samkeppnin er því ekki mikil þar sem litið er til þessara vöruflokka.