- Auglýsing -
Langi Seli og Skuggarnir verða með tónleika á Hard Rock Reykjavík í kvöld, 11. maí, í tilefni af útgáfu þröngskífunnar Bensínið er búið.
Sveitin sem hefur verið að í yfir 30 ár spilar frumsamda tónlist undir áhrifum frá rokkabillístefnunni. Á tónleikunum verður farið vítt og breitt yfir feril hennar, tóndæmi tekin af fyrri skífum og nýjasta platan að sjálfsögðu leikin í heild sinni. Tónleikarnir hefjast stundvíslega klukkan 21.