Innbrot var framið í fyrirtæki í austurborginni. Málið er í rannsókn.
Bifreið var ekið á steyptan stólpa og umferðarskilti í miðborginni. Talið er að ökumaður bifreiðarinnar hafi ekki verið með fullu ráði. Hann var handtekinn grunaður um akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna. Þá á hann einnig yfir höfði sér sektir fyrir að haga ökuhraða sínum ekki miðað við aðstæður sem og að aka á óhæfum hjólbörðum. Hann reyndist einnig vera eftirlýstur fyrir erlend lögregluyfirvöld. Hann var vistaður í fangaklefa eftir að búið að draga úr honum blóðsýni.
Tilkynnt um meiriháttar líkamsárás í félagslegu veitingarúrræði í austurborginni. Málið er í rannsókn. Rúðubrjótur var á ferðinni á sama svæði.
Maður var handtekinn í miðborginni vegna brots á lögreglusamþykkt. Hann var vistaður í fangaklefa uns ástand hans leyfir að við hann verði rætt.
Tilkynnt var um leðurblöku á flugi í austurborginni. Við skoðun á myndefni var staðfest að um leðurblöku væri að ræða. Dýraþjónustunni var gert viðvart en dýrið hafði þá flogið á brott.
Maður var handtekinn í miðborginni, grunaður um sölu og dreifingu fíkniefna. Hann neitaði að segja til nafns og framvísa skilríkjum og er einnig grunaður um ólögmæta dvöl í landinu. Meintur dópsali var vistaður í fangaklefa vegna málsins.
Umferðarslys varð í Hafnarfirði hvar vinnuvél var ekið á bifreiðar. Talsverð hálka og ísing var á akbrautinni.
Talsvert var um umferðarslys. Í Kópavogi urðu talsverðar skemmdir á bifreið sem var fjarlægð með dráttarbifreið. Engin slys urðu á fólki.
Maður var handtekinn í austurborginni, grunaður um vörslu fíkniefna sem og meðferð á heimatilbúnum sprengjum.