Þórólfur Guðnason, sóttvarnarlæknir, ætla að leggja til við heilbrigðisráðherra að samkomubanninu, sem á að gilda til 13. apríl, verði framlengt og gildi út allan apríl að minnsta kosti. Þessu greindi hann frá á upplýsingafundi almannavarnadeildar ríkislögreglustjóra.
Hann segir að í lok apríl verði þá hægt að skoða næstu skref.
Þórólfur minnti á að núna reyni virkilega á úthald fólks. „Veiran tekur ekki tillit til frídaga né páska“ minnti Þórólfur á.
Á föstudaginn bað Þórólfur landsmenn um að búa sig undir að samkomubannið muni gilda lengur en gert var ráð fyrir í upphafi. Hann sagði þá baráttuna gegn útbreiðslu COVID-19 vera langhlaup og að útlit sé fyrir að faraldrinum ljúki í maí.