Fimm manns gista fangageymslur eftir nóttina.
Tveir voru handteknir á stolnum bíl. Ökumaður grunaður um akstur undir áhrifum fíkniefna.
Búðarþjófur lét greipar sópa í verslun. Hann var talinn hafa farið út með tvær flíkur. Málið enn í skoðun og verður kært þegar og ef gögn liggja fyrir.
Lögreglu vart kölluð til vegna góðkunningja sem var til ama í verslunarhúsnæði. Hann sást aka á brott og vissu lögreglumenn að hann væri án ökuréttinda. Eftirtförin endaði með því að leiðindaseggurinn reyndi svo að komast undan á fæti en lögregla sá við honum og handtók hann. Viðkomandi verður kærður fyrir að aka ítrekað, sviptur ökuréttindum, og að sinna ekki stöðvunarmerkjum lögreglu.
Afskipti voru höfð af tveimur ökumönnum í vesturborginni. Annar var án gildra ökuréttinda og hinn að tala í símann.
Ökumaður stakk af frá vettvangi eftir umferðaróhapp. Engin meiðsli urðu á fólki.
Maður var handtekinn eftir líkamsárás þar sem hann beitti hníf. Áverkar minniháttar. Hnífamaðurinn var handtekinn og læstur inni vegna rannsóknar málsins.
Brotist var inn í skóla. Málið er í rannsókn.
Lögregla var kölluð til vegna vegna þjófnaðar í verslun.
Ökumaður stöðvaður grunaður um akstur undir áhrifum fíkniefna. Þá var hann án gildra ökuréttinda.
Afskipti voru höfð af ölvuðum ungmennum. Stúlka kærð fyrir ofbeldi gegn lögreglu.