- Auglýsing -
Leit að Söndru Líf Þórarinsdóttur Long hófst að nýju seint í kvöld, en hennar hefur verið saknað síðan á fimmtudag, skírdag.
Lögreglan gaf út um klukkan 18 á mánudag að leit væri hætt þann dag og myndi hefjast aftur á þriðjudag.
Þyrla Landhelgisgæslunnar fór af stað til leitar upp úr klukkan ellefu í kvöld og hefur hún verið á flugi yfir Hrakhólma á Álftanesi. Auk þess hafa leitarhópar verið kallaðir út til að leita á afmörkuðu svæði.