Enn er leitað að flugvélinni sem fór frá Reykjavíkurflugvelli skömmu fyrir hádegi í gær.
Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins er flugmaðurinn Íslendingur á fimmtugsaldri og farþegarnir þrír erlendir ferðamenn á þrítugsaldri.
Leitað er í kring um Úlfljótsvatn og Þingvallavatn og hafa verið notaðir drónar, bílar, bátar og þyrlur við leitina. Þá verður leit haldið áfram í dag eiga leitaraðstæður að vera nokkuð góðar í hið minnsta framan af degi.
Leitað var að vélinni fram á nótt og hafa aðstandendur verið upplýstir um stöðuna. Ásgeir Erlendsson, upplýsingafulltrúi Landhelgisgæslunnar sagði í samtali við Fréttablaðið að leitin væri ein sú umfangsmesta síðari ára. Þá hafi flugið verið útsýnisflug og farþegar ætluðu sér að taka myndir af íslenskri náttúru.