Lyfjafyrirtækið Alvotech leitar að 100 vísindamönnum og sérfræðingum til að taka þátt í uppbyggingu leiðandi lyfjafyrirtækis á heimsvísu. Hjá Alvotech starfa nú um 330 vísindamenn í hátæknisetri fyrirtækisins í þremur löndum.
Þau störf sem nú eru í boði eru fjölbreytt og starfsreynsla og hæfniskröfur eru mismunandi. Þannig geta bæði efnilegir vísindamenn og reyndir sérfræðingar sótt um störf á sínu áhugasviði. Talsvert af störfum eru fyrir ungt og metnaðarfullt fólk með góðan bakgrunn og mikinn drifkraft sem hefur áhuga til að starfa undir leiðsögn sérfræðinga Alvotech.
Þau störf sem nú eru auglýst til umsóknar eru aðallega miðuð að einstaklingum með háskólamenntun á sviði líf-, raun- og lyfjavísinda eða verkfræði.
Áhugasömum er bent á að sótt er um störfin á sérstakri umsóknarsíðu storf.alvotech.is.
Sjá einnig:Fuji Pharma fjárfestir í Alvotech fyrir 6,2 milljarða króna