Vísbendingar bárust í morgun um hugsanlega staðsetningu flugvélarinnar sem hvarf í gær. Erlent símafyrirtæki hefur grandskoðað merki frá símum farþegar frá því í gær. Þær vísbendingar hafa orðið til þess að meginþungi leitarinnar er við sunnanvert Þingvallavatn. Ríkisútvarpið greindi frá þessu.
Auk þess að leit er haldið áfram á landi hafa bátar og kafarar verið sendir til leitar á Þingvallavatni.
Ríkisútvarpið segir skilyrði til leitar við vatnið erfið. Um er að ræða eina umfangsmestu leit á síðari tímum. Í gær voru yfir 700 manns við leit og talið að enn fleiri komi að leitinni í dag. Fjórir voru um borð í vélinni, íslenskur flugmaður og þrír erlendir ferðamenn.