Leitað er að eigendum fólksbifreiðar á þýskum bílnúmerum sem ekki hafa enn fundist. Bifreiðin er yfirgefin og er sú eina sem ekki hefur tekist að hafa uppi á eigendum að eftir háskaför tugi manna í nótt að gosstöðvunum í Geldingadal.
Líkt og Mannlíf greindi frá enduðu um fjörtíu manns í fjöldahjáparmiðstöðinni í Grindavík í nótt og björgunarsveitir hafa týnt tölunni yfir það hversu mörgum þær þurftu að bjarga í nótt. Göngufólk var hreinlega örmagna eftir gönguna til og grá gosstöðinni í Geldingardal.
Enn hafa ekki allir fundist og er nú leitað að eigendum bifreiðarinnar með þýsku númerunum. Finnist eigendur þeirra ekki fljótlega verður umfangsmikil leit hafin. Björgunarsveitir hafa orðið fyrir vonbrigðum með hversu margir virtu ekki tilmæli yfirvalda um að fara ekki á gosstöðvarnar vegna slæms veðurs.
Þá greinir RÚV frá því að nú snemma í morgun hafi fólk farið að streyma aftur á svæðið, þrátt fyrir viðvarandi um enn versnandi veður, gula viðvörun og viðvarandi almannavarna um hættulega gasmengun á svæðinu. Eldgos hófst í Fagradalsfjalli um klukkan korter í níu í föstudagskvöld. Gosið er lítið en hætta á svæðinu getur verið meiri en margan grunar.