Búðaþjófur var staðinn að verki við iðju sína. Hann iðraðist að einhverju marki og skilaði þýfinu. Lögreglan tók af honum skýrslu og sleppti honum síðan út í kuldann.
Ammar búðarþjófur var einnig staðinn að verki. Mál hans var sömuleiðis afgreitt með skýrslu.
Þriðji þjófurinn rændi veski af viðskiptavini í verslun í gærdag. Vasaþjófurinn slapp undan hrammi laganna og gengur laus.
Tilkynnt um líkamsárás þar sem tveir aðilar réðust að öðrum tveimur. Vitað er hverjir ofbeldismennirnir eru og er málið í rannsókn.
Innbrot var framið í austurborginni og verðmætum stolið. Lögreglumenn skoðuðu upptökur úr öryggismyndavélum og þekktu aðilann vegna fyrri afskipta. Hann var handtekinn stuttu síðar og læstur inni í fangaklefa vegna málsins.