Karlmaður á sjötugsaldri lést á Landspítalanum í gær. Í skeyti frá lögreglu kemur fram að maðurinn hafi slasast alvarlega síðastliðinn laugardag eftir að hann féll af reiðhjóli. Maðurinn var að hjóla eftir göngustíg í Seljahverfi í Breiðholti þegar slysið varð.
Lögreglu barst tilkynning um slysið snemma á laugardagsmorgun. Maðurinn var fluttur með sjúkrabíl á slysadeild. Í tilkynningu frá lögreglu segir orðrétt:
„Hann lést svo á spítalanum í gær eins og áður sagði. Ekki er hægt að greina frá nafni mannsins að svo stöddu.“
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu og rannsóknarnefnd samgönguslysa rannsaka tildrög slyssins.