Sunnudagur 22. desember, 2024
-1.2 C
Reykjavik

Leynilegar upptökur með syni Jóns um baktjaldamakk: „Hafði dregið son minn á asnaeyrunum“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Jón Gunnarsson, fráfarandi alþingismaður og aðstoðarmaður matvælaráðherra, segir í færslu á Facebook að sonur hans hafi verið blekktur af svissneskum fjárfesti til að upplýsa um málefni föður síns og baktjaldasamninga varðandi ákvörðun hans um að taka baráttusæti á lista Sjálfstæðisflokksins í Kraganum. Sonur Jóns hafi hitt manninn undir þeim formerkjum að þeir myndu eiga viðskipti.

„Fyrir tveimur mánuðum hafði „svissneskur fjárfestir“ frá „Meitri Group“ samband við son minn og lýsti yfir áhuga á að fjárfesta í fasteignum hér á landi. Sonur minn, sem er fasteignasali, átti í framhaldinu fjarfund með manninum, sem kom svo hingað til lands. „Fjárfestirinn“ sótti son minn á bifreið með einkabílstjóra og skoðuðu þeir nokkur verkefni víða um höfuðborgina og fóru út að borða í lok dags,“ segir Jón.

 

Nú sé komið á daginn að Svisslendingurinn hafi tekið upp einkasamtöl. Jón segir í ítarlegri færslu á Facebook í morgun að fjölskylda hans hafi sætt aðför. Hann hótar lögsókn og kæru vegna málsins.

„Undanfarnar vikur virðist hafa verið settur á svið vel skipulagður blekkingarleikur sem leikinn er í margar vikur,“ skrifar Jón.

Hann segir blaðamenn Heimildarinnar, Aðalsteinn Kjartansson og Helgi Seljan, hafi verið að baki Svisslendingnum í að blekkja son sinn.

- Auglýsing -

„Aðalsteinn Kjartansson og Helgi Seljan, blaðamenn á Heimildinni og fyrrverandi samstarfsmenn tveggja frambjóðenda Samfylkingarinnar fyrir Alþingiskosningarnar, hringdu samtímis í mig og son minn síðasta föstudag til að spyrja nánar út í atriði úr kvöldspjalli sonar míns og „fjárfestisins“. Sérstök heimasíða var búin til fyrir fjárfestingarsjóðinn í þessum blekkingarleik en síðunni var lokað í framhaldi af símtölum blaðamannanna,“ skrifar Jón.

Jón sagði á Bylgjunni í morgun að Samfylkingin tengdist málinu en vildi þó ekki fullyrða um aðild frambjóðenda flokksins að upptökunum.

 

- Auglýsing -

„Ég vil ekki tjá mig um fréttaflutning sem ekki hefur átt sér stað,“ segir Aðalsteinn Kjartansson við Mannlíf í morgun.

 

Færsla Jón í heild sinni:

Ég og fjölskylda mín erum sleginn yfir því hversu langt svokölluð rannsóknarblaðamennska gengur og ég vona að fólk sjái hvað þetta er orðið fjarri lagi og siðlaust. Undanfarnar vikur virðist hafa verið settur á svið vel skipulagður blekkingarleikur sem leikinn er í margar vikur. Erlendur maður villir á sér heimildir til þess eins að blekkja son minn í þeim tilgangi að koma höggi á mig. Sagan er eftirfarandi.

Fyrir tveimur mánuðum hafði „svissneskur fjárfestir“ frá „Meitri Group“ samband við son minn og lýsti yfir áhuga á að fjárfesta í fasteignum hér á landi. Sonur minn, sem er fasteignasali, átti í framhaldinu fjarfund með manninum, sem kom svo hingað til lands. „Fjárfestirinn“ sótti son minn á bifreið með einkabílstjóra og skoðuðu þeir nokkur verkefni víða um höfuðborgina og fóru út að borða í lok dags.

Í síðustu viku kom hins vegar í ljós að maðurinn hafði villt á sér heimildir, dregið son minn á asnaeyrunum vikum saman án þess að ætla nokkurn tímann að eiga nein viðskipti. Þvert á móti virðist markmiðið hafa verið að hlera son minn og ná af honum leyndum og ólögmætum upptökum að tala um mig og hvalveiðar. Aðalsteinn Kjartansson og Helgi Seljan, blaðamenn á Heimildinni og fyrrverandi samstarfsmenn tveggja frambjóðenda Samfylkingarinnar fyrir Alþingiskosningarnar, hringdu samtímis í mig og son minn síðasta föstudag til að spyrja nánar út í atriði úr kvöldspjalli sonar míns og „fjárfestisins“. Sérstök heimasíða var búin til fyrir fjárfestingarsjóðinn í þessum blekkingarleik en síðunni var lokað í framhaldi af símtölum blaðamannanna.

Þessar njósnir um son minn hófust um miðjan september, áður en ríkisstjórninni var slitið og ráðherrar VG sögðu sig frá ráðuneytum sínum. Um helgina fékk ég tölvupóst frá Aðalsteini á Heimildinni þar sem hann lagði fyrir mig sjö spurningar, sem ljóst er að byggja á efni úr samtali sonar míns við „fjárfestinn“.

Þar sé m.a. haft eftir syni mínum að ég hafi tekið baráttusætið á lista Sjálfstæðisflokksins gegn því að fá að fara inn í matvælaráðuneytið til þess að gefa út leyfi til hvalveiða. Um þetta hefur verið mikið slúðrað, en á sér að sjálfsögðu enga stoð í raunveruleikanum. Þar þarf ekki að nefna annað en að lögum samkvæmt hafa aðstoðarmenn engar heimildir til að taka stjórnsýsluákvarðanir eða gefa út leyfi af nokkru tagi.

Það var mat Bjarna Benediktssonar að málaflokkar matvælaráðuneytisins, sem er eitt atvinnuvegaráðuneytanna, þyrftu á meiri athygli að halda en hann gæti veitt sem ráðherra nokkurra ráðuneyta í starfsstjórn. Forveri hans í ráðuneytinu var þar með tvo aðstoðarmenn. Málaflokkar ráðuneytisins eru fjölmargir og umsókn um leyfi til hvalveiða á grundvelli gildandi laga aðeins eitt fjölmargra sem koma þar inn. Sonur minn var einnig spurður um ferðalag mitt á alþjóðahvalveiðiráðstefnuna og hver hafi greitt fyrir ferðina. Ég hef greint frá því áður að ég stóð straum af kostnaði við ferðalagið sjálfur en af spurningum blaðamannanna að dæma virðist sonur minn hafa að einhverju leiti gefið annað í skyn umrætt kvöld.

Ég hef verið lengi í stjórnmálum og fæ reglulega á mig gagnrýni sem þingmaður og fyrir mínar stjórnmálaskoðanir. Það er hluti af því að starfa á þessum vettvangi. Að ráðast beint gegn fjölskyldunni minni með þessum hætti er hins vegar af öðrum toga. Fjölskyldur þingmanna eiga ekki undir neinum kringumstæðum að þurfa að sæta árásum eins og þessum frá íslenskum fjölmiðlum eða erlendum hagsmunaaðilum og þrýstihópum. Sonur minn er venjulegur fjölskyldufaðir í rekstri, sem eyddi mörgum vikum í að eltast við gylliboð svikahrapps sem engin innistæða var fyrir. Í þeim samskiptum lagði hann mikið á sig til að heilla hinn meinta fjárfesti og tryggja viðskiptin, en fór rangt með í einhverjum málum sem þar voru til umræðu.

Sonur minn hefur leitað til lögmanns og mun hyggst hann leggja fram kæru vegna málsins enda hefur verið gróflega brotið gegn friðhelgi einkalífs hans með ólögmætum upptökum sem honum varð ekki kunnugt um fyrr en Helgi Seljan upplýsti hann um það.

Eftir stendur hins vegar að um allan heim eru vinnubrögð eins og þessi talin óviðeigandi og ólíðandi. Ég læt ekki árásir eins og þessar hafa áhrif á mína afstöðu gagnvart sjálfbærri nýtingu auðlinda. Afstaða mín til hvalveiða byggir á sjálfbærni veiða við Íslandsstrendur, menningu okkar og sögu. Ég mun áfram halda áfram að berjast fyrir íslenskum hagsmunum og sjálfbærri nýtingu auðlinda okkar þrátt fyrir þessar ógeðfelldu tilraunir til að fæla mig frá mínu starfi.

 

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -